EnglishGermanIcelandic
Main page

Front page
News
The History of Icelandic Sorcery
The History
Advertisement
The Museum of
Sorcery & Witchcraft
Witchcraft Museum
Sorcerer's Cottage
Kistan
Galdraloftið - leikhús
The guests
of the week
GUESTS INTERVIEWS
Strandagaldur's work
Strandagaldur
Archaeological Research
Um rannsóknina
Fréttir af rannsókninni
Advertisement
The Club of the Tilberi´s
The Tilberi Club
Pictures

Photo Gallery
Press Kit
For The Media
Press Kit
Advertisement
SA | föstudagur, 10 júlí 2009 | 08:20
Sýningartímar á Þjóðbrók og hinu hyskinu
Þjóðbrók og Kleppa
Brúðuleikhúsið Dúkkukerran frumsýnir brúðuleikritið Þjóðbrók og hitt hyskið föstudagskvöldið 10. júlí kl. 20:00 á Galdraloftinu í Galdrasafninu á Hólmavík. Þetta er fjölskyldusýning og fjallar um þjóðsagnapersónur og atburði á Ströndum. Sýningar verða á Galdraloftinu í sumar á fimmtudögum og föstudögum, og eftir samkomulagi. Sýningin tekur um 50 mínútur. Miðapantanir eru í síma 451 3525. Næstu sýningar eru eftirfarandi daga:
Föstudagur 10. júlí - Frumsýning, kl. 20
Laugardagur 11. júlí - önnur sýning, kl. 20
Sunnudagur 12. júlí - þriðja sýning, kl. 20
Fimmtudagur 16. júlí - fjórða sýning, kl. 20
Föstudagur 17. júlí - fimmta sýning, kl. 20
SA | miðvikudagur, 24 júní 2009 | 06:58
Þjóðbrók og hyskið hennar á Galdraloftinu í sumar

SA | föstudagur, 29 ágúst 2008 | 00:00
Galdraloftið - sagnaleikhús

Á Galdrasafninu á Hólmavík er starfrækt sagnaleikhús þar sem sýndir eru skemmtilegar sýningar og byggðar á íslenskri þjóðtrú og sagnamennsku. Galdraloftið er sambland af leikhúsi og sagnamennsku. Miðapantanir og upplýsingar er að finna í síma 451 3525 og netfangi

Á fjölunum er um þessar mundir dagskráin Álfar og tröll og ósköpin öll, þar sem sagnamaðurinn og ólíkindatólið Sigurður Atlason fer á kostum á hlaupabraut sagnaleikhússins.

Hægt er að panta sýningar fyrir hópa í vetur.
Hópur er frá 10 manns upp í 30 manns og miðaverð er kr. 1500.-

 

SA | mánudagur, 11 ágúst 2008 | 20:56
Selkolla III - Dálkur bóndi


Player courtesy of MC Media Player.

 

Hér birtist þriðji þáttur umfjöllunarinnar um Selkollu. Það er Sigurður Atlason sem vinnur að því verkefni og sér allt um senn um myndatökur, handritsgerð og frásögn. Verkefnið er hluti af Sagnaleikhúsinu á Galdraloftinu og markmiðið er að mynda allar helstu þjóðsögur á Ströndum á næstu misserum. Í þessu myndbandi er meðal annars fylgst með ljótri hlið Selkollu. Þeirri sem hún er þekktust af og telst mjög alvarlegur glæpur enn þann dag í dag. Þessi þáttur er ekki fyrir viðkvæma. Seinna mun fjórði þáttur Selkollu birtast hér á galdrasyning.is þar sem verður fjallað sérstaklega um þátt Guðmundar góða við að losa Strandamenn 13. aldar við þá ógurlegu óvætt sem Selkolla var.

Smellið hér fyrir 2. þátt um Selkollu.
Smellið hér fyrir 1. þátt um Selkollu.

SA | miðvikudagur, 06 ágúst 2008 | 17:13
Selkolla II - Þjakaða stúlkan
Á slóðum óvættarinnar Selkollu


Player courtesy of MC Media Player.

 
Hér birtist annar þáttur umfjöllunarinnar um óvættina Selkollu sem gekk áður á Bjarnarfjarðarháls og Selströnd og gerði bændum miska. Hér fylgjumst við meðal annars með þeirri hlið hennar sem sneri að mannúð. Seinna mun þriðji þáttur Selkollu birtast á galdrasyning.is sem heitr Dálkur bóndi.

Smellið hér til að skoða 1. hluta myndarinnar um Selkollu

SA | föstudagur, 01 ágúst 2008 | 20:55
Á slóðum óvættarinnar Selkollu


Player courtesy of MC Media Player.

Í þessu myndbandi leiðir galdramaður af Ströndum okkur á slóðir óvættarinnar, draugsins og hálftröllsins Selkollu og fylgir eftir slóð þjóðsögunnar frá Eyjum á Bölum að Selkollusteini á Bjarnarfjarðarhálsi. Seinna mun birtast hér á galdrasyning.is framhald sögunnar og endalok Selkollu, sem gat tekið á sig ýmsar óhugnarlegar myndir.

<< Start < Prev 1 2 Next > End >>

Results 1 - 6 of 11
Advertisement
Search Engine

Magical staves

Galdratöluskip
Talbyrðingur til að granda hundtyrkjum og útlendum sjóreyfurum.
Read more...
The Question
Hefur þú heimsótt Galdrasýningu á Ströndum? / Have you visited our museum?
  
Advertisement
The Online-Shop
Our Museum Store
 
Strandagaldur Online-shop
Advertisement
Contacts, guestbook
and various links
Contact us
Guestbook
Links
Tourist Information