Þjóðtrúarstofa fær brautargengi
Wednesday, 02 May 2007 09:02

"Við Strandagaldursmenn erum býsna kátir og ánægðir með að tillagan um
Þjóðtrúarstofu sé ein af þeim 37 beinu tillögum sem Vestfjarðanefndin hafði í
skýrslu sinni," segir Jón Jónsson þjóðfræðingur: "Við lítum svo á að það sé
staðfesting á að ríkisvaldið muni veita hugmyndinni brautargengi og að því höfum
við Sigurður Atlason framkvæmdastjóri Strandagaldurs verið að vinna í rúmt ár.
Enn hefur ekki komið í ljós nákvæmlega hvernig útfærslan verður, en ég reikna
með að það skýrist á næstu dögum."
"Það er sannfæring okkar Strandagaldursmanna að þessi störf sem verkefninu
fylgja og Þjóðtrúarstofan sjálf muni hafa jákvæð áhrif á byggð og samfélag á
Ströndum öllum," segir Jón og bætir við: "Eins og hugmyndin er hugsuð er gert
ráð fyrir 10 milljóna árlegu framlagi til Þjóðtrúarstofunnar frá
Menntamálaráðuneytinu og það er sá grundvöllur sem þarf til að byggja upp öfluga
starfsemi til framtíðar. Miðað við þetta árlega framlag teljum við að hægt verði
að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem stefnt hefur verið að með
Þjóðtrúarstofunni."
"Við erum vissir um að með markvissri vinnu að fyrirliggjandi
verkefnahugmyndum, samstarfs- og þjónustusamningum, verður hægt gera
Þjóðtrúarstofuna að öflugum vinnustað háskólamenntaðra fræðimanna á fáum árum.
Niðurstaðan í skýrslunni er í takt við tillögur okkar í ítarlegri og vandaðri
greinargerð sem við sendum nefndinni. Þar fórum við fram á ákveðinn
grundvallarstuðning, en síðan lögðum við einnig til að verkefnið sjálft myndi
stækka og eflast og byggt verði ofan á þennan stuðning með sjálfsaflafé og
verktakavinnu. Hugmyndin hefur alltaf verið sú að Þjóðtrúarstofan verði að sem
allra mestu leyti sjálfbær starfsemi í framtíðinni."
Aðspurður um hvort almennur fögnuður sé með verkefnið á Ströndum segir
Jón að fjöldi einstaklinga hafi fagnað þessum áfanga með aðstandendum
verkefnisins og sent hamingjuóskir. "Einnig hafa allmargir aðilar sem við
hyggjumst vinna með í framtíðinni sett sig í samband vegna þessarar niðurstöðu
og fagnað því að Þjóðtrúarstofan sé að komast á laggirnar, m.a. þjóðfræðideild
Háskóla Íslands, Háskólasetur Vestfjarða og fleiri. Sveitarstjórnarmenn á
Ströndum hafa hins vegar kannski verið uppteknari af því sem ekki er í
skýrslunni, en því sem þó er þar að finna."